Kammerkór Hafnarfjarðar er sjálfstætt starfandi kór. Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997. Síðan þá hefur hann eflst og er nú talinn með betri kórum sinnar tegundar hér á landi. Í nóvember 1998 gaf kórinn út geisladiskinn Gaudete! og hlaut hann frábæra dóma.

Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá sína sem fjölbreyttasta og hefur flutt veraldlega og kirkjulega kórtónlist allt frá miðöldum fram til nútímans auk annarrar tónlistar, til dæmis djass og þjóðlagatónlistar.

Kammerkórinn hefur af og til lagt land undir fót og meðal annars haldið tónleika í Grafarvogi, Kirkjubæjarklaustri, Kaupmannahöfn, Vestmannaeyjum, Vínarborg, Berlín og Barcelona.

Stjórnandi kórsins frá upphafi er Helgi Bragason.