Miðvikudaginn 22. maí kl. 20:00 ætlar Kammerkórinn að heimsækja Grensásdeild Landspítalans og halda þar stutta tónleika fyrir vistmenn og starfsfólk deildarinnar.
Á þessum tónleikum verða sungin nokkur af lögunum sem sungin voru á vortónleikunum fyrr í mánuðinum.
Vortónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar 2013 bera yfirskriftina Vorsöngvar. Að þessu sinni verður leitað fanga hjá Svíum, Norðmönnum, Dönum og Færeyingum. Einnig verða íslenskar kórperlur á efnisskránni.
Allir söngvarnir eru án undirleiks og fjalla þeir um fegurð vorsins, ástina og náttúruna.
Tónleikarnir verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 1. maí kl. 17:00 og í Hafnarborg, Hafnarfirði sunnudaginn 5. maí kl. 20:00.
Aðgangseyrir er 2000 krónur en 1500 krónur fyrir nemendur og eldri borgara.
Við tökum einnig við nýjum styrktarfélögum. Fyrir 6.000 króna áskriftargjald fást tveir miðar á þrenna tónleika kórsins. Á þann hátt fær styrktarfélaginn hvern miða á 1.000 krónur. Nánari upplýsingar eru á styrktarfélagasíðunni.
Nú er komið að því að kórfélagar fái útrás fyrir skemmtanaþörf sína því að árshátíð kammerkórsins er á næsta leyti. Hún verður haldin laugardaginn 2. febrúar á sama stað og á síðasta ári, þ.e. í Bjarkarsalnum að Haukahrauni í Hafnarfirði (gengið inn frá suðurhlið hússins, næst leikskólanum Bjarma). (Sjá á korti).
Húsið verður opnað klukkan 19:00 og hefst borðhald klukkan 19:30. Skemmtinefndin hefur lagt nótt við dag við að gera hátíðina sem glæsilegasta. Andi Woodstock-hátíðarinnar og hippatímabilsins mun svífa yfir vötnum auk þess sem kórfélagar munu bjóða upp á úrvalsskemmtiatriði.
En allt kostar þetta eitthvað smáræði. Kórfélagar (og makar sem vilja koma með) þurfa að borga 3.250 krónur fyrir herlegheitin. Gjaldið þarf að borga í síðasta lagi þriðjudaginn 29. janúar. Elfa Sif, formaður skemmtinefndarinnar gefur upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu til að leggja upphæðina inn á.
Frjáls og blómleg skemmtun.
Ást, friður og rokk og ról.
Vel heppnuð aðventu- og jólatónleikatörn er nú að baki. Áður en kórinn fer í jólafrí verða þó tveir hefðbundnir viðburðir.
Á Þorláksmessu, 23. desember, verður farið í kyndilgöngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Gangan hefst við Fríkirkjuna klukkan 19:30 og henni lýkur í Jólaþorpinu. Kórfélagar munu leiða sönginn í göngunni, samkvæmt venju síðustu ára.
Á aðfangadag, 24. desember, mun kórinn svo syngja við stutta helgistund á Kleppi, eins og gert hefur verið undanfarin ár. Helgistundin hefst klukkan 14:00.
Fyrir þetta allt saman verður haldin æfing þriðjudaginn 18. desember. Á undan æfingunni verður haldinn fundur þar sem tekin verður ákvörðun um hugsanlega utanlandsferð árið 2013 eða 2014. Fundurinn hefst klukkan 19:30 og verður æfingin í beinu framhaldi af honum.
Kammerkór Hafnarfjarðar heldur sína árlegu Aðventu- og jólatónleika í Hásölum þriðjudaginn 4. desember og fimmtudaginn 6. desember kl. 20:00.
Að þessu sinni flytur kórinn hinar ýmsu perlur fram að hléi. Í hléinu verður boðið upp á kaffi og konfekt. Eftir hlé flytur kórinn svo Navidad Nuestraeftir Aríel Ramírez ásamt Gissuri Páli Gissurarsyni, tenór og fjögurra manna hljómsveit, sem skipuð er þeim Gunnari Gunnarssyni, píanóleikara; Þresti Þorbjörnssyni, gítar- og charangoleikara; Báru Gísladóttur, kontrabassaleikara og Jóni Björgvinssyni, slagverksleikara.
Navidad Nuestra er byggt á argentínskri tónlistarhefð. Árið 2009 söng Gissur Misa criolla eftir sama höfund á tónleikum með Kammerkórnum.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og kr. 1.500 fyrir nemendur og eldri borgara.
Við minnum einnig á að alltaf er hægt að gerast styrktarfélagi kórsins. Fyrir 6.000 króna áskriftargjald fást tveir miðar á þrenna tónleika kórsins. Á þann hátt fær styrktarfélaginn hvern miða á 1.000 krónur. Nánari upplýsingar eru á styrktarfélagasíðunni.