Kammerkór Hafnarfjarðar er sjálfstætt starfandi kór. Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997. Síðan þá hefur hann eflst og er nú talinn með betri kórum sinnar tegundar hér á landi. Í nóvember 1998 gaf kórinn út geisladiskinn Gaudete! og hlaut hann frábæra dóma. Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá sína sem fjölbreyttasta og …
Kammerkórinn hefur á síðustu árum komið sér upp öflugum hópi velunnara sem eru áskrifendur að tónleikum kórsins. Fyrirkomulagið er þannig að hver styrktarfélagi greiðir 6500 króna áskriftargjald og fær fyrir það tvo miða á næstu þrenna tónleika kórsins. Á þann hátt fær styrktarfélaginn hvern miða á rúmlega 1000 krónur. Meginþorri styrktarfélaga Kammerkórsins er fjölskyldumeðlimir og …